300 gr soðnar kjúklingabaunir, eða 1 dós niðursoðnar
2-3 msk tahini sesamsmjör
3-4 msk sítrónusafi eða rifin engiferrót
4-5 msk tamarísósa
1 msk cuminduft
sjávarsalt
Leggja 150 gr af ósoðnum kjúklingabaunum í bleyti yfir nótt, hella vatninu af, setja nýtt vatn og sjóða í ca 1 kls. Gott að setja smábút af kombu-þangi með í pottinn og veiða það uppúr þegar baunirnar eru soðnar.
Öll hráefni sett í matvinnsluvél og maukað þar til kæfan er slétt og felld.
Einnig má nota aðrar baunir svo sem adukibaunir eða linsubaunir.
Svo má prófa sig áfram með hin ýmsu krydd út í blönduna og gott er að mauka steinselju með eða aðrar ferskar kryddjurtir.



